ArnfinnurKolbeinsson
Tölvunarfræðingur með áherslu á vefþróun, notendaviðmót og efnisgerð
Tæknimiðaður forritari með reynslu í bæði framenda- og bakendaforritun, hönnun og efnisgerð. Hef unnið að veflausnum og stafrænum verkefnum fyrir bæði smáa og stóra kúnna ásamt því að þróa eigin verkefni í frítíma.
Sjá verkefniStarfsferill
Hugbúnaðarþróun @ Nemo Solutions
2022 – NúverandiKomið að þróun á veflausnum og innri kerfum fyrir kúnna með áherslu á framenda, notendaviðmót og nútímalega vefþróun. Unnið í litlum teymum og tekið þátt í bæði þróunar- og hönnunarákvörðunum. Settur í óþekkt kóðaumhverfi og fundið mína leið til að sinna verkefnum. Hef refactorað heilar síður og komið með kerfishönnunarbreytingar á margar fleiri.
Þjónustufulltrúi & Vakstjóri @ ELKO Þjónustuver
2021 – NúverandiSá um tæknilega aðstoð, þjónustu við viðskiptavini og mikil samskipti við helstu flutningsaðila/birgja landsins. Hingað koma öll símtöl, tölvupóstar og spjöll inn fyrir stærstu raftækjaverslun landsins. Lært á mörg ný kerfi sem hafa verið síbreytileg og uppfærð án þess að það hefur áhrif á þjónustu. Unnið sem vaktstjóri yfir Black Friday, Singles Day og séð um eftirkaupaþjónustu eftir áramót þegar mest er um að gera í þjónustuverinu.

Sölufulltrúi @ Takk Samskipti
2018 – 2021Þróaði sterka samskipta- og söluhæfileika í gegnum dagleg samskipti við viðskiptavini og markmiðadrifna sölu.

Eldri störf
- Sendill @ Domino's2017 - 2018
- Uppsetning & Framleiðsla á gardínum @ Sólar Gluggatjöld2013 - 2019
- Fiskvinnsla @ Þórsberg2011
Um Mig
Ég heiti Arnfinnur Kolbeinsson og er nýútskrifaður tölvunarfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Ég hef lengi haft mikinn áhuga á tækni, hönnun og stafrænum lausnum.
Ég sérhæfi mig helst í vefþróun og notendaviðmótum, en hef einnig reynslu af bakendaforritun, hönnun og efnisgerð. Hef unnið að bæði eigin verkefnum og lausnum fyrir raunverulega kúnna í gegnum störf mín og freelance vinnu.


Nýleg verkefni
Ráðstefnuvefur NFS 2026

Static vefsíða fyrir Nordic Fertility Society ráðstefnuna 2026. Sá um uppsetningu, hýsingu, hönnun og umsjón á vefnum fyrir Senu. Setti upp CMS fyrir auðvelda uppsetningu og breytingu á efni fyrir kúnna. Þetta er árleg ráðstefna sem Nordic Fertility Society heldur. Hingað fara einstaklingar og fyrirtæki til að skrá sig á ráðstefnuna og afla sér upplýsinga um viðburði og landið í heild sinni. Allt efnið var sett upp á aðgengilegan hátt þar sem aldursbilið er mikið og tæknikunnáttan misjöfn.
TypeWriter

Lokaverkefnið mitt fyrir BSc gráðuna mína í Tölvunarfræði. Ritgreiningarkerfi fyrir nemendur og kennara með áherslu á ritunargögn, framvindu og greiningu skjala. Kerfið gefur ítarlega tölfræði og sögu fyrir skrifleg verkefni unnin af nemendum. Kerfið var byggt alveg frá grunni með gagnagrunn, skýjahýsingu, aðgangsumsjón og fleiru ofan á virknina sjálfa.
BBA // Fjeldco

Sá um ýmsar breytingar á heimasíðunni. Uppsetning á nýjum undirsíðum og breytingar á núverandi síðum. Oft unnið á þröngum tímarömmum og klárað beiðnir fljótt og örugglega. Ýmsar lausnir þar sem það þurfti að blanda saman sérsniðnum kóða við uppsetninguna.
Hrein Snilld

Refactoraði síðuna yfir í Prismic CMS og hannaði auglýsingaefni fyrir markaðsherferðir. Sá um hönnun fyrir ýmsar árstímabundnar útsölur. Sá um breytingu á ferli við að fá tilboð í þrif.
Hér & Nú

Sá um uppsetningu á rebranding síðu hjá auglýsingastofunni Hér & Nú. Mikið af samskiptum við hönnuði til að tryggja að síðan leit út alveg eins og þau vildu. Passa þurfti sérstaklega upp á það að síðan myndi líta vel út í öllum upplausnum.
Menntun
Bakkalársgráða
Háskólinn í Reykjavík
Háskólapróf (BSc)
ágúst 2023 - júní 2026
Fundamentals in Digital Marketing
Námskeið
mars 2022 - apríl 2022
Brottfararpróf í Grafískri Miðlun
Tækniskólinn
Sveinspróf
ágúst 2018 - maí 2020
Stúdentspróf
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Framhaldsskólapróf
ágúst 2012 - júní 2016
Grunnskólapróf
Álftamýrarskóli
Grunnskólapróf
maí 2002 - ágúst 2012
Eigin Verkefni
Twitch AI Botti
Twitch botti fyrir streymi, aðallega fyrir vini mína. Bottinn tekur við beiðnum frá Twitch í formi '!tts' eða '!bot' og spilar skilaboð til baka í rödd sem notandinn velur. Beiðnin er filteruð í gegnum OpenAI API'ið og ElevenLabs er notað til að spila og búa til raddirnar. OBS Websockets og TwitchIO er notað til að meðhöndla tengingu við twitch og móttöku og sendingu skilaboða.
"Hef lengi haft áhuga á svona AI-röddum og langaði að bæta þeim við þegar ég er að streyma. Fannst þetta bæta rosalega mikið við upplifunina og gerði mér kleift að þurfa ekki að kíkja á spjallið eins oft"

League Tölfræði
Hálfstatic síða sem sýnir skemmtilega tölfræði yfir síðustu 20 leiki hjá völdum spilurum. Riot API'ið er notað til að nálgast gögn og síðan er rennt í gegnum response'ið til sía og móta.
"Þar sem þetta var verkefni fyrir lítin hóp þá þurfti ég að koma með áhugaverðar leiðir til að komast framhjá timeout'i útaf mörgum requests. Mestöll vinnan fór í það að renna yfir massívu skrárnar sem skila sér frá Riot og tengja saman playerana við þeirra stats."

RuneScape Tölfræði
Rosalega svipuð pæling og League Tölfræðin. Jagex API'ið er notað til að nálgast gögn hjá völdum spilurum sem er síðan rennt yfir og gert lesanleg.
"Þetta var hugmynd sem kom upp þegar við vinirnir vorum rosalega duglegir að spila Leagues í OSRS og vorum alltaf að metast á því hver væri að standa sig best. Eina tólið sem var í boði var crystalmathlabs sem bauð ekki upp á eins virkni og mig langaði í svo ég bara bjó til mína eigin."
